Trace Minerals Magnesium Citrat og Glycinate 120 tuggutöflur
120 stkMagnesíum er fjórða algengasta steinefnið í líkamanum og það á þátt í yfir 300 lífefnafræðilegum ferlum. Magnesíum spilar einnig lykilhlutverk í taugaleiðni, vöðvasamdrætti, myndun beina og tanna, efnaskiptum, orkumyndun og heilbrigði hjarta og æðakerfis. Rannsóknir hafa þó sýnt að 70% fólks innbyrði ekki ráðlagðan dagsskammt (RDS) af magnesíum. Magnesíum tuggutöflur eru bragðgott bætiefni sem hjálpar þér að viðhalda eðlilegu magni magnesíums í líkamanum.
Magnesíum:
- Nauðsyn fyrir gott andlegt jafnvægi og vinnur gegn streitu
- Virkar slakandi og bætir svefn
- Stuðlar að eðlilegri slökun vöðva og vinnur gegn sinadráttum og fótaóeirð
- Hefur góð áhrif á hjarta og æðakerfi
- Getur unnið gegn of háum blóðþrýstingi
- Nauðsyn fyrir sterk bein og tennur
Fyrir hverja:
- Alla aldurshópa, frá börnum og upp í eldri borgara, sem vilja taka inn magnesíum á þægilegan og bragðgóðan máta
- Þá sem eru undir miklu álagi og streitu og þurfa ró og slökun
- Alla sem sofa illa
- Þá sem eiga í vandræðum með að taka inn bætiefni í töfluformi
Ábyrgðaraðili: Avita ehf.
Innihald í einum skammti:
- Magnesíum sítrat 336mg
- Járn 0,25mg
Önnur innihaldsefni: Xylitol, sorbitól, náttúruleg bragðblanda (náttúruleg bragðefni, blönduð ber, sítrónusafi, sítrus), örkristallaður sellulósi, sterínsýra, hýprómellósi, sítrónusýra, magnesíumsterat, Exberry™-litur, stevíólglýkósíðar, sílikondíoxíð.
Engir þekktir ofnæmisvaldar.
Athugið: Fæðubótarefni kemur aldrei í staðinn fyrir fjölbreytt og gott mataræði. Varist að nota ekki meira en ráðlagður dagskammtur segir til. Geymist við stofuhita og ekki í sólarljósi.
Skammtastærð: Fullorðnir og börn 4 ára og eldri mega taka allt að 4 tuggutöflur daglega. Vörur sem innihalda mikið magnesíum geta haft hægðalosandi áhrif. Ef slík áhrif koma fram skal skipta ráðlögðum dagsskammti upp yfir daginn.
Geymið þar sem börn ná ekki til.